19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Efla hf. verkfræðistofa er aðili að Dokkunni

Efla hf. verkfræðistofa er aðili að Dokkunni

Við bjóðum Eflu hf. verkfræðistofu velkomna í Dokkuna - góður liðsauki í öflugan hóp Dokkufyrirtækja.

EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki með meginstarfsemi á Íslandi og ráðgjöf um heim allan. EFLA hefur á að skipa mjög hæfu og reynslumiklu fagfólki á fjölmörgum sviðum. Sameiginlegt markmið þess er að veita viðskiptavinum bestu mögulegu þjónustu og lausnir, sama hvert eðli eða umfang verksins er.

EFLA leggur ríka áherslu á trausta ráðgjöf en einnig á frumkvæði, samvinnu og hugrekki, og lítur á starfsfólk sitt sem verðmætustu auðlind sína.
 
Skipulag EFLU byggir á sex markaðssviðum sem eru: Iðnaður, Byggingar, Orka og veitur, Umhverfi, Samgöngur og Verkefnastjórnun. Markaðssviðin og kjarnasviðin, sem þeim tilheyra, eru möndullinn í markaðsstarfi og þjónustu fyrirtækisins. Saman mynda sviðin eina heild í samræmdri þjónustu EFLU.
 
EFLA starfrækir dóttur- og hlutdeildarfélög í Noregi, Rússlandi, Frakklandi, Póllandi, Slóveníu, Tyrklandi og Dúbaí.

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan