
Meðal efnis sem fjallað er um á þessu sviði er:
- Gæðastjórnun
- ISO staðlar
- Straumlínustjórnun / Lean
- Umhverfisstjórnun
- Verkefnastjórnun
- Vinnuverndar og öryggisstjórnun
- Vörustjórnun
- Vöruþróun
Markmið sviðsins er að fjalla um árangursstjórnun í víðum skilningi. Sviðið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum sem fást við að mæla, meta, skipuleggja og betrumbæta verk- og framleiðsluferla í öllum tegundum fyrirtækja og stofnana. Að meta árangur er gríðarleg áskorun fyrir stjórnendur og ákvarðanataka í kjölfar árangursmats, kallar á stöðugar breytingar og umbætur. Þær aðferðir sem fjallað er um á þessu sviði eru kjarninn í þeim vinnubrögðum, sem vænlegust þykja til aukins árangurs á hvað sviði sem er.