

Meðal þess sem fjallað er um á þessu sviði er:
- Agile og Scrum
- Hönnun hugbúnaðar
- Hugbúnaðarprófanir
- Upplýsingaöryggi
- Viðskiptagreind / Business intelligence
- Viðskiptagreining / Business analysis
Markmið sviðsins er að þjóna sérfræðingum og stjórnendum sem starfa í tengslum við upplýsingtækni á einn eða annan hátt. Eins og fram kemur hér að ofan þá verður fjallað um fjölmarga þætti sem lúta að þarfagreiningu, þróun og stjórnun á UT sviðinu. Leitast er við að fjalla um einstaka þætti en einnig að samþætta fagsviðin og skoða þau þannig í stóra UT samhenginu.