19. maí 2012
Lágmarka
Svona færð þú þér notendaaðgang

Til að fá notendaaðgang þarft þú að vera starfsmaður aðildarfyrirtækis Dokkunnar.

Ef vinnustaðurinn þinn er aðili að Dokkunni, hefur þú öðlast fullan aðgang að öllum fundum vöruhúss Dokkunnar. Til að skrá þig á fundi þarft þú að hafa notendaaðgang og hér eru leiðbeiningar:

  • Fyrsta skrefið er að þú færð þér notendaaðgang, notendanafn og lykilorð. Það gerir þú með því að smella á "Nýskrá" hér neðar. Að því loknu er nauðsynlegt að staðfesta tengil (smella á hann), sem kemur til þín í tölvupósti og virkja þannig notendaaðganginn. Leiðbeiningar eru í hverju þrepi skráningarinnar.
  • Annað skrefið er að þú velur þér áhugasvið (póstlista) sem þú vilt fylgjast með. Það gerir þú á forsíðunni "Velja áhugasvið". Nánari leiðbeiningar hér til hægri.
  • Athugaðu sérstaklega, að við skráningu á fundi þarftu ávallt að nota notendanafnið þitt og lykilorðið. Þú getur alltaf kallað eftir nýju lykilorði með því að setja inn notendanafnið þitt og smella á "Password Reminder" á innskráningarsíðunni. Ef þú hefur einnig gleymt notendanafninu þá hefur þú samband á dokkan@dokkan.is og við sendum þér notendanafnið þitt um hæl.

 

  Nýskrá  

Lágmarka
Svona ferð þú á póstlista Dokkunnar

Ef þú er starfsmaður aðildarfyrirtækis, þá færð þú þér fyrst notendaaðgang (sjá nánar hér til vinstri) - ef þú ert ekki þegar búin að því - og velur svo áhugasviðin (póstlistana). Einungis þeir sem hafa notendaaðgang geta skráð sig og mætt á fundi.

Ef þú ert ekki starfsmaður aðildarfyrirtækis en vilt vera á póstlistunum okkar þá ferðu beint í að velja áhugasvið. 

Ef þú velur þér áhugasvið og færð til baka upplýsingar um að þú sért þegar á póstlista Dokkunnar, sem skýrist af því að þú hefur verið félagi í einhverjum gömlu faghópanna, þá skaltu hinkra smá stund eftir tölvupósti, en þar er þér boðið að uppfæra áskriftina þína og hvetjum við þig til að gera það.

Þegar tölvupósturinn berst þá smellir þú á tengilinn, fyllir út reitina og velur þau áhugasvið (póstlista) sem þú vilt fylgjast með - algerlega óháð fyrri skráningu í faghópa Dokkunnar. Áskriftin þín uppfærist í takt við það sem þú velur. Að þessu loknu færð þú staðfestingu í tölvupósti um að skráningin hafi tekist og yfirlit yfir þau áhugasvið sem þú valdir. Minnum á að ef þú ert starfsmaður aðildarfyrirtækis þá er afar mikilvægt að þú hafir notendaaðgang til að geta mætt á fundina.

 

Velja áhugasvið

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan