19. maí 2012

Markþjálfi: Hvað ert þú að gera í markaðs- og skipulags málefnum?

  Event has started, it is no longer possible to enroll.
Hefst: 12. janúar 2011 08:30
Lýkur: 12. janúar 2011 10:00
Flokkur:
Markþjálfun
Dagsskrá:

Markþjálfun 12. janúar 2011

Markaðssetning markþjálfunar

Hvað ert þú að gera í markaðs- og skipulags málefnum?

Miðvikudaginn 12. janúar 2011 kl.8:30-9:45 förum við í heimsókn til Verkefnalausna í Hlíðarsmára 2, 201 Kópavogur.

Verkefnalausnir

Elín Þ. Þorsteinsdóttir framkv.stj. Verkefnalausna, sem annast sölu og þjónustu á Mind Manager tekur á móti okkur. Elín mun kynna m.a. Hugkort sem nýtist markþjálfum mjög vel í starfi t.d. við verkefnastjórnun, skipulagningu, hugarflug, fundarstjórnun, upplýsingastjórnun, kynningar og skýrslugerð. Hægt er að ná sér í hugkort á netinu frítt í 30 daga. www.verkefnalausnir.is

 

 

Umræður um sérhæfingu markþjálfa

Markþjálfar geta sérhæft sig á ýmsa vegu til þess að mæta þörfum ólíkra einstaklinga - en hvað eru markþjálfar að gera í dag varðandi sérhæfingar? 

Brita Berglund ACC vottaður markþjálfi og Master NLP mun ræða við okkur um sérhæfingu, en Brita hefur sérhæft sig í mentormarkþjálfun, en einnig í lífsmarkþjálfun.

 

Spark í rass

Á fundinum verður kynning á námskeiðinu “Spark í rass”- Komdu þér og þínu á framfæri. Gefið verður smá sýnishorn af því sem koma skal á námskeiðinu þar sem áhersla er lögð á markaðssetningu fyrir markþjálfa og einyrkja. Einföld og árangursrík leið til að koma sér og sinni vöru/þjónustu á framfæri.

Sjá nánar á vef Connected-Women

Hérna gefst tækifæri á að kynnast þeim fjölmörgu möguleikum sem í boði eru til þess að ná valdi á góðu skipulagi með aðstoð góðrar tækni og koma þér og vöru/þjónustu þinni á framfæri á sem bestan og áhrifaríkastan hátt.

 

 

 

 

 

Uppfært af Martha Árnadóttir Þann 16. desember 2010

 Til baka         

   :     
Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan